|
Íslenska | Both | English
LeitFlokkar
Nýlegar greinar
Nýleg ummæli
Subscribe to this blog's feed
[What is this?] Höfundarréttur varinn samkvæmt leyfi frá Creative Commons.
Knúið af
Movable Type 3.32 |
Tenglar
|
13. september 2006Helvítis dópistar og þjófarÍ morgun vaknaði ég við símtal frá lögreglunni. Þeir höfðu farið inn til einhvers sprautufíkils á Hverfisgötunni og séð þar glænýjan skenk frá Ikea og farið að spá í hvernig hann hafði fengið hann, og eftir smáleit fannst kvittun, í mínu nafni. Þarna var sumsé þjófurinn sem rændi jakkanum mínum og veskinu um daginn. En það má samt skemmta sér yfir þessu, við skulum skoða til gamans hvað hann hefur gert með kortinu mínu:
Starfsfólk þessara verslana ætti að taka betur eftir. Lífið og tilveran | Jóhannes Tryggvason skrifaði kl. 17:41 | Varanleg slóð | 2 ummæli 12. september 2006Kominn heim, jakka stoliðFyrir viku fór ég til Barcelona. Þessvegna hefur enginn getað náð í mig, og þessvegna fór ég. Það var mjög fínt að sitja og éta Tapas, verandi utan þjónustusvæðis. Grey vinnurnar mínar sem náðu ekki í mig... En annars lenti ég í því fyrir tveimur vikum síðan að ég var að vinna nálægt Hlemmi (hjá Filmus á Grettisgötunni) og um kvöldmatarleytið hefur einhver helvítis róninn komið inn og stolið fína leðurjakkanum mínum með vespumerkjunum, með veskinu með ökuskírteininu og debet/kreditkorti. Ef þið sjáið einhvern í svörtum leðurjakka með gulu vespumerki á hægri ermi, vængjuðu vespumerki á bakinu og bláu og hvítu vespumerki á vinstri ermi, þá vinsamlega lemjið viðkomandi og hringið í lögregluna og látið handtaka. Grrr... Lífið og tilveran | Jóhannes Tryggvason skrifaði kl. 14:55 | Varanleg slóð | 0 ummæli 5. júlí 2006Sjálfsmynd við Kárahnjúkastíflu Pólitík | Jóhannes Tryggvason skrifaði kl. 21:38 | Varanleg slóð | 1 ummæli 30. júní 2006Farinn í bústaðÉg er farinn í bústað í Húsafelli um helgina. Ef einhverjum leiðist þá ætla ég að labba upp á Ok einhverntímann um helgina, svo fólk sem vill taka þátt í því og grilla og chilla síðan í bústaðnum er velkomið. Lífið og tilveran | Jóhannes Tryggvason skrifaði kl. 16:55 | Varanleg slóð | 0 ummæli 19. júní 2006ÞrítugurGreinarhöfundur um tvítugt. Ingvar Valgeirs hringdi og óskaði mér til hamingju og sagðist hafa reddað spes gjöf. Hann bað mig um að líta út um gluggann, hann hefði reddað sviði og nokkrum poppurum til að taka lagið mér til heiðurs. Flott gjöf. Hraun! léku snilldarlega fyrir fólk þarna og ég fékk að taka lagið með þeim, tók Rhinestone Cowboy eftir Glenn Campbell við góðan orðstír og Forever Young eftir Alphaville við, ja, ekki alveg jafn góðan orðstír. Þegar Forever Young var hálfnað brutust út heljarslagsmál fyrir utan gluggann, og einhver var kýldur niður og sparkað í liggjandi. Ætli ég reyni ekki að vanda mig betur við sönginn næst... Í gær var svo fjölskylduboðið heima hjá pabba og mömmu. Þar gaf fjölskyldan mér örlítið af útivistardóti sem á eftir að virka vel í væntanlegri Hornstrandaferð sem Bragi er að skipuleggja. Systir mín og mágur gáfu mér líka Draumalandið eftir Andra Snæ Magnason. Ég las hana alla í gærkvöldi. Og þar er eftirfarandi klausa frá 1918: Danmörk tilkynnir erlendum ríkjum að hún hafi samkvæmt efni þessara sambandslaga viðurkennt Ísland fullvalda ríki, og tilkynnir jafnframt, að Ísland lýsi yfir ævarandi hlutleysi sínu og að það hafi engan gunnfána. Þegar ég las þetta varð mér hugsað til embættisverka síðasta og þarsíðasta forsætisráðherra og ég táraðist. Ég hlýt að vera að meyrna í ellinni. Lífið og tilveran | Jóhannes Tryggvason skrifaði kl. 23:25 | Varanleg slóð | 3 ummæli 14. júní 2006Ég er að verða þrítugur18. júní verð ég þrítugur. Fokk. Sjitt. Andskotinn. Ég er að verða gamall.
Ætli ég verði ekki á staðnum frá ca. kl. 21:00, svo hefst ball með strákunum seinna um kvöldið. Lífið og tilveran | Jóhannes Tryggvason skrifaði kl. 12:59 | Varanleg slóð | 3 ummæli 11. júní 2006Dramatískt SMSRétt í þessu var ég að fá eftirfarandi skilaboð:
Mér dettur helst í hug að þetta tengist þessum smákrökkum sem hringja í mig í hverri viku og biðja um Kamillu. Ýmis vitleysa | Jóhannes Tryggvason skrifaði kl. 13:28 | Varanleg slóð | 6 ummæli |